Öruggt Kass
Við hjá Kass leggjum ekki bara áherslu á einfaldleika og góða notendaupplifun heldur skiptir öryggi okkur öllu máli. Þegar appið var í þróun þá fór það í gegnum ítarlegar öryggisprófanir auk þess sem Íslandsbanki, sem er einn þróunaraðila Kass, vinnur eftir skýrum ferlum og kröfum þegar farið er með nýjar lausnir í loftið.
Dæmi um öryggiseiginleika í Kass
- Óskað er eftir PIN og CVC númeri notenda þegar notendur skrá sig í Kass
- Kreditkortaupplýsingar eru aldrei vistaðar í símanum heldur eru þær vistaðar hjá færsluhirði til að tryggja hámarksöryggi
- Til að staðfesta borgun þarftu að slá inn fjögurra stafa PIN númer — mundu að halda því alveg útaf fyrir þig
- Ef þú gleymir PIN númerinu getur þú fyllt út formið á kass.is og færð nýtt númer sent í Netyfirlit í Netbankanum þínum
- Kass er í rekstri hjá Íslandsbanka sem uppfyllir strangar öryggiskröfur og er undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins
Nánar um Kass hér.
