Að kaupa notað

Ég hef keypt ýmislegt notað í gegnum tíðina. M.a.s. einu sinni rúm sem er meira en margir gera.

Hef samt aldrei keypt notað lén áður.

Ég skráði semsagt lén um daginn á isnic.is. Lénið var áður í eigu fyrirtækis með 30 starfsmenn. Nú rignir yfir mig alls kyns pósti sem á að fara til þessa fólks. Aðallega ruslpósti en líka staðfestingar á rástíma í golf og fleira slíkt.

Fyrst fannst manni eins og þetta ætti að vera eitthvað sem ætti að vera að hægt að hreinsa frá þegar lén er selt aftur.

En sú tæknilausn er væntanlega ekki til ennþá. Og þetta er kannski ekki orðið alvöru vandamál ennþá. Netið og tölvupóstur eru bara ríflega tvítug fyrirbæri.

Það er eitthvað samt skemmtilegt við þá hugmynd að minn ruslpóstur gæti orðið vandamál einhvers annars eftir að ég er farinn yfir móðuna miklu… eða a.m.k eftir að fyrirtækið mitt er hætt störfum :)