Merkilegast við komu Costco

Fyrsti erlendi fjárfestirinn sem veðjar á að Íslendingum vegni vel á næstu árum


Costco verslunarrisinn er að hugsa um að opna matvörubúð hérna.

Sumir telja það neikvætt. Mér finnst það að öllu leyti jákvætt.

Stærsta fréttin í því finnst mér samt vera sú að þarna er erlendur fjárfestir að veðja á innlendan neytendamarkað á Íslandi.

Costco er núna bara á Spáni og í Bretlandi (í Evrópu)

Það hefur verið alls konar óvissa uppi fyrir venjulegt fólk á Íslandi sem spyr sig spurninga eins og:

“Er bóla á fasteignamarkaði? Ætti ég þá ekki að kaupa núna því svo kemur annað hrun og verðið á íbúðinni minni lækkar?

“Á ég að þora að skipta um vinnu? Fara í nám? Verða einhver góð störf til staðar fyrir mig hérna?”

Í slíkri óvissu er gott að sjá grjótharða kapítalista eins og Costco veðja á að það verði allt í lagi með okkur Íslendinga á næstu árum.

Það hafa vissulega komið nokkrir erlendir fjárfestar á síðustu árum.

En enginn þeirra hefur veðjað sérstaklega á að íslenskir meðaljónar muni hafa kaupmátt.

Þeir stóru fjárfestar sem hafa komið hingað eftir hrun hafa nær allir verið að veðja á erlendar tekjur — hvort sem það er af stóriðju, ferðaþjónustu eða hugverkum tölvufyrirtækja.

Costco er reyndar lágvöruverðsverslun. En það er sama. Þeir væru ekki að hugsa um að koma hingað ef þeir tryðu að allt væri á leiðinni til fjandans á Íslandi.

Mér er a.m.k. aðeins létt.

Email me when Andres Jonsson publishes or recommends stories