Áhugaverðar myndir sem detta í bíó í janúar

Með myndunum fylgir prósentutala af Rotten Tomatoes. Talan er hlutfall gagnrýnenda sem gefa myndinni einkunn sem samsvarar 7 af 10 eða hærra. Ég horfi helst ekki á myndir sem eru undir 70%, þó það séu undantekningar. Frumsýningardagsetningar eru af kvikmyndir.is og eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Sisters (60%) kom reyndar út á annan í jólum, en þetta er sú mynd á listanum sem fær sístu dómana. Það mun þó ekki stöðva mig í að fara á hana því Amy Poehler og Tina Fey fara með aðalhlutverkin í henni. Þessar „gömlu“ SNL-ofurhetjur hafa aðallega verið í vinsælum sjónvarpsþáttum eins og t.d. 30 Rock og Parks & Recreation en kvikmyndirnar hafa ekki gengið jafnvel hjá þeim. En eins og ég segi, þar sem Poehler og Fey koma saman, þar er partí.

6. janúar — The Hateful Eight (74%) er nýjasta mynd meistara Quentin Tarantino. Ég veit ekkert um hvað hún er, held að þetta sé vestri. Vil sem minnst vita því ég vil að Tarantino komi mér á óvart, nema kannski þegar ég fór á Inglourious Basterds í annað skiptið. Ég er ekki búinn að horfa á þennan trailer.

15. janúar — The Big Short (87%) er gamandrama byggt á bók eftir Michael Lewis (Moneyball), og fjallar um fjóra gaura sem sáu hrunið fyrir. Hljómar óspennandi en sagan er víst hrikalega vel sögð.

22. janúar — Creed (93%). Reboot á Rocky, Stallone leikur Rocky á ný sem nú er orðinn þjálfari í boxinu. Ég veit ekki af hverju mig langar á þessa mynd. Hún fær svo háa prósentu á Rotten Tomatoes að það hlýtur að vera eitthvað þarna.

22. janúar — The Revenant (82%). Alejandro González Iñárritu snýr aftur með epískan vestra með Leonardo DiCaprio og Tom Hardy í aðalhlutverkum. Getur ekki klikkað.

29. janúar — The Danish Girl (72%). Fjallar um eina af fyrstu transkonunum til að gangast undir kynleiðréttingarferli. Eddie Redmayne leikur hana og Alicia Vikander leikur konuna hans (og svo hennar?). Ótrúlega forvitnileg saga með tveimur af áhugaverðari leikurum nútímans. Leiðrétting: The Danish Girl verður frumsýnd 26. febrúar.