Hvað er hlaðvarp og af hverju skiptir það máli?
Ég á engan bíl. Ég geng og hjóla flestra minna ferða og þá vil ég hafa eitthvað í eyrunum. Ég hef hlustað á ansi margar hljóðbækur, Spotify-áskriftin heldur mér við efnið í tónlistarheiminum og svo eru það blessuð hlaðvörpin.
Hvað er hlaðvarp?
Hlaðvarp er eins og útvarpsþáttur, nema þú getur hlustað á hann hvenær sem þú vilt. Það eru meira að segja margir útvarpsþættir með sitt eigið hlaðvarp (t.d. á rúv.is). Hlaðvarpsslóð vísar einfaldlega á lista af hljóðskrám og þegar listinn breytist er nýjustu skránni hlaðið inn í hlaðvarpsappið þitt.

Ég er með app í símanum sem heitir Overcast. Þar get ég bæði leitað að hlaðvörpum sem eru í skrá sem appið heldur utan um mikinn fjölda hlaðvarpa, eða slegið inn vefslóð að hlaðvarpinu ef það er ekki í skránni.
Fyrir nokkrum mánuðum var sett á fót vefurinn Alvarpið og stofnendur hans kölluðu hann hlaðvarp. Þar var og er boðið upp á að hlusta á þætti sem eru tengdir inn í bloggfærslur. En framan af var Alvarpið í raun og veru ekkert hlaðvarp. Ekki var boðið upp á þesskonar vefslóð og ég tiltók hér að ofan, og því var Alvarpið ekkert nema síða þar sem þú hlustar á þætti á netinu. Það er ekki hlaðvarp og mér hefði kannski þótt stofnendur vefsins mátt rannsaka hugtakið aðeins betur.
Núna er Alvarpið komið með hlaðvarpsslóð. En það má gera betur. Í Alvarpinu eru margir mismunandi þættir og ég hef ekki áhuga á nema einum eða tveimur þeirra. Alvarpið er nefnilega það myndi útleggjast hlaðvarpsstöð (e. podcast network). Hér þarf að bæta úr, og bjóða upp á hlaðvarpsslóð fyrir hvern og einn þátt.
Kjarninn á við mjög svipað vandamál að stríða. Þar eru færri þættir en þeim fer fjölgandi. Tvíhöfði bættist nú síðast við hlaðvarpsstöðina þeirra og Baggalúturinn Guðmundur Pálsson er nýráðinn þangað. Ég hef lítinn áhuga á öðrum þáttum Kjarnans, þar sem ég hef bara nóg annað að hlusta á, og vil helst ekki sækja þætti sem ég mun ekki hlusta á.
Eftir að hafa hlustað á erlend hlaðvörp í mörg ár finnst mér spennandi að fylgjast með þróuninni hérna heima. Mig grunar að margir hlusti heima hjá sér eða í vinnunni. Eftir því sem fjölgar þeim sem taka lengri tíma í að fara á milli staða, til dæmis með öðrum ferðamátum en einkabílnum, og tengingar síma við bíla batna, þá held ég að æ fleiri muni nýta sér hlaðvörp á ferðinni. Þá er mikilvægt að standa vel að þeim.