Edda, Hólmfríður og Orri til Aton
Þau Edda Kristín Óttarsdóttir, Hólmfríður Benediktsdóttir og Orri Eiríksson hafa verið ráðin til Aton. Edda mun sinna kvikmyndagerð, Hólmfríður hönnun og Orri hugmynda- og textasmíð. Þau hafa öll þegar hafið störf hjá fyrirtækinu.
Edda hefur áralanga reynslu af kvikmyndagerð af ýmsu tagi. Hún vann hjá 101 Productions frá stofnun fyrirtækisins, kom þar að öllum helstu verkefnum sem unnin voru hjá 101, hvort heldur var við upptökur, eða klippingu og eftirvinnslu. Hún hefur einnig unnið að gerð fjölda auglýsinga, tónlistarmyndbanda og heimildarmynda.
Hólmfríður útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá LHÍ árið 2022 og með meistaragráðu í leturhönnun árið 2024 frá Écal skólanum í Sviss. Hún nam einnig leturhönnun við UMPRUM skólann í Prag. Árið 2020 stofnaði hún, með vinkonu sinni, grafíska hönnunarstúdíóið Lófí/Low Fee sem hefur tekið að sér margvísleg verkefni.
Orri hefur starfað við hugmynda- og textasmíð í fjölda ára, fyrst hjá Maurum auglýsingastofu og svo hjá Baklandi Creative. Hann hefur unnið með viðskiptavinum af öllum stærðum og gerðum og sinnt flestum þeim verkefnum sem snúa að hugmynda- og textavinnu og mótun skilaboða. Ótal frasar, slagorð og markaðsskilaboð hafa runnið undan rifjum Orra og þá hefur hann komið að sköpun nokkurra vörumerkja frá grunni og unnið að verðlaunuðum auglýsingaherferðum.
„Það er okkur mikið gleðiefni að geta greint frá ráðningu þessa öfluga fólks, sem þegar er farið að setja mark sitt á starfsemi Aton. Þau Edda, Hólmfríður og Orri koma úr ólíkum áttum og sinna ólíkum verkefnum, en eiga það sameiginlegt að geta horft á öll verk frá nýjum hliðum og leyst úr verkefnum á skapandi og skemmtilegan hátt,“ segir Sif Jóhannsdóttir, rekstrarstjóri Aton.