Þjálfarinn og teymið
Ég sat í heita pottinum í gær sem var fullur af strákum úr 10. bekk. Íþróttaþjálfarinn úr skólanum kom til þeirra til að ræða skólaþríþrautina sem yrði haldin daginn eftir.
Ég, eins og oft áður, tengdi íþróttirnar og hugbúnaðargerðina saman.
Þjálfarinn hvatti þá áfram og reyndi að fá þá til að leysa hlutina eins og self-organizing dev hóp.
“Munið við erum að fara skapa hefð hérna”
“Þið eruð í 10. bekk, þið verðið að leiða þetta og sýna fordæmi. Fá stelpurnar me og fá 8. og 9. bekk með.”
“Hvar er Arnar? Strákar ha? Prófið að heyra í honum.”
Strákarnir komu áleiðis áhyggjum og hindrunum sem scrum masterinn mætti leysa til að auðvelda verkið.
“Verður ekki pottþétt starfsmaður við hjólagrindurnar svo við þurfum ekki að eyða tíma að læsa hjólunum?”
“Getum við ekki startað öllum saman í staðinn fyrir í mörgum hollum svo það myndist skemmtilegri keppni?”
“Það er auðveldara ef við tökum hlaupin fyrst”
Það er auðvelt að sjá hvernig þetta tengist. Þjálfarinn útskýrði markmiðið og setti það í hendurnar á hópnum að leiða breytinguna. Breytingar verða alltaf miklu meira smooth ef þær koma frá manni sjálfum. Yfirstjórnin var búin að gera sitt. Það var greinilega búið að fá leyfi og setja allt upp eins og þyrfti. Nú var þetta í þeirra höndum að fylgja þessu eftir.
Hann setti það líka í hendurnar á þeim að virkja þann sem vantaði. Hann er greinilega partur af hópnum en var ekki með þennan dag og hugsanlega spurning hvort hann myndi vera með á morgun. Það virkar oftast betur ef jafningar ræða við mann og hvetja frekar en eitthvað “authority”. Að finnast hluti af hópnum tvíeflir flesta einstaklinga. Hópar áorka meiru en einstaklingar.
Strákarnir eru þeir sem voru að fara keppa. Þeir höfðu gert það áður. Þeir voru því í bestu stöðunni til að meta hvað mætti fara betur. Teymið er oft best til þess fallið að sjá hvað mætti betur fara í umgjörðinni. Það er þá undir því komið að koma því áleiðis til þeirra sem geta leitt fram breytinguna.
Mér fannst ótrúlega skemmtilegt að heyra hvernig íþróttaþjálfarinn talaði við þá á mannlegum nótum og reyndi að setja sig nær þeim frekar en að standa yfir þeim og predika. Eitthvað sem góðir stjórnendur innan fyrirtækja gera einnig.