Er gott “kódakmóment” framundan?

Stafræn endurnýjun (digital transformation) er ofarlega á baugi hjá stjórnendum fyrirtækja sem ekki eru fædd í gær. Tækniþróun undanfarinna áratuga hefur getið af sér nýja kynslóð fyrirtækja sem eru afar fær í að hagnýta nýja tækni, nýjar aðferðir og skipulag. Stafræn endurnýjun er svar þeirra sem fyrir eru við þessari þróun.
Hvað einkennir þessa nýju kynslóð fyrirtækja?
Þau safna gögnum um flesta þætti starfseminnar, greina þau með aðferðum gagnavísinda (data science) og hagnýta til að bæta ákvarðanir. Þau gera ótal litlar en skipulagðar tilraunir og prófa sig þannig áfram með ýmsar breytingar á vörum, þjónustu og skipulagi — markmiðið er að gera óumflýjanleg mistök eins snemma og hægt er og læra svo af þeim. Þessi fyrirtæki eiga í miklum samskiptum við samfélag viðskiptavina, birgja og annarra hagaðila til að þau geti aðlagað sig sem best að þörfum þeirra. Upplýsingar flæða fram og til baka, innan og utan veggja fyrirtækisins og þátttaka starfsmanna og viðskiptavina í ákvarðanatöku er umfangsmeiri en áður hefur þekkst. Ákvarðanir eru margar og litlar fremur en fáar og stórar. Og fleira mætti nefna til.
Fyrirtækin eru nefnd internetfyrirtæki þegar internetið er mikilvægur hluti af viðskiptamódelinu. Einnig er talað um digital natives, þegar stafræn tækni og hugbúnaður er alltumlykjandi í áherslum og hefur verið frá upphafi.
Svo virðist sem þessi nýja kynslóð fyrirtækja skapi meira virði fyrir viðskiptavini sína með lægri tilkostnaði en þau fyrirtæki sem fyrir eru. Þau bjóða betri vörur og þjónustu fyrir lægra verð.
Þessi nýja kynslóð fyrirtækja virðist vera hæfari en þau sem fyrir eru og eru þau að yfirtaka hvern bransann á fætur öðrum. Þau eru fim og klár og heita t.d. Amazon, Uber, AirBnB, Netflix og Tesla. Að öllu óbreyttu munu þau og þeirra líkar taka yfir og leysa af hólmi samkeppnisaðila af eldri kynslóðinni. Enginn bransi er óhultur lengur enda virða þessi fyrirtæki ekki gamlar skilgreiningar á brönsum heldur flæða þau þangað sem tækifærin liggja.
Hugbúnaður mun éta heiminn sagði einn af frumkvöðlum internetsins í árdaga þess. Og svo virðist sem það sé að rætast.
Mörg fyrirtæki af eldri gerðinni hafa brugðist við þessari þróun. Þau hafa uppfært stefnu, skipulag, og mannauð, breytt vörum og þjónustu og skipt um samstarfsaðila í þeim tilgangi að nýta þau tækifæri sem breyttur heimur hefur upp á að bjóða. Dæmi um þekkt fyrirtæki sem byggja á gömlum merg og hafa breytt áherslum sínum með þessum hætti eru General Electric, Caterpillar og Encyclopedia Britannica. Stafræn tækni er orðinn alltumlykjandi í starfsemi þessara fyrirtækja.
Þau fyrirtæki sem bregðast of seint við eru dauðadæmd. Þau lifa á fornri frægð en svo kemur að skuldadögum. Smám saman fjarar undan þeim. Það getur tekið fáein ár eða nokkra áratugi. Talað er um að verða fyrir stafrænni truflun (digital disruption) þegar nýr og hæfari aðili af nýrri kynslóð fyrirtækja kemur inn á markaðinn, breytir honum og tekur hann með trompi.
Segja má að Netflix hafi truflað Blockbuster á markaði fyrir leigu á kvikmyndum og sjónvarpsefni. Nú er Netflix að trufla hefðbundnar sjónvarpsstöðvar og auglýsingamarkað. Apple truflaði Nokia á farsímamarkaði. Amazon truflaði bóksala og síðar verslanir af ýmsum stærðum og gerðum. AirBnB truflaði hótelbransann. Uber truflaði leigubílabransann.
Ný tegund fjármálafyrirtækja, fintech fyrirtæki, hefur gert atlögu að bönkum og framundan er krappur dans á tryggingamarkaði þar sem insurtech fyrirtæki hafa gert sig líkleg til að taka væna snæð af tryggingabökunni.
Hver mun trufla þinn bransa?
Er gott “kódakmóment” framundan?
