Rafbækur fyrir nám í Háskóla Íslands allt að 60% ódýrari en prentútgáfur

Reykjavík 28. Ágúst 2017
Þegar gerður er samanburður á verði bóka fyrir nema á fyrsta ári í tveimur fjölmennum deildum Háskóla Íslands kemur í ljós að nemendur geta sparað rúmlega 10.000 krónur með því að kaupa eða leigja námsbækurnar rafrænt í stað þess að kaupa prentútgáfu. Fyrir fyrsta-árs nema í viðskiptafræði nú á haustönn er munurinn 14.665 krónur en 13.475 hjá fyrsta-ársnemum í hjúkrunarfræði.
Mesti verðmunur milli prentútgáfu og rafrænnar útgáfu stakra bóka er á Kozier & Erb’s Fundamentals of Nursing sem notuð er í faginu Hjúkrunafræði og hjúkrunastarf. Þar er rafræn útgáfa kennslubókarinnar 3.590 krónum ódýrari en prentútgáfan. Sé bókin leigð en ekki keypt er munurinn enn meiri, en hægt er að leigja bókina á 4.190 krónur, en þannig er hún 6.390 krónum ódýrari en á prenti.
Í þeim tilvikum þar sem mestu munar, í Hjúkrunarfræði, geta nemendur sem leigja bækurnar í 180 daga þar sem það er kostur, í heildina sparað 13,475 krónur, sem gerir 38% verðmun.
Það er Heimkaup.is sem býður nemendum upp á að kaupa bækur fyrir háskólanám á rafrænu formi í samvinnu við fyrirtækið VitalSource. Nemandinn kaupir eða leigir bók sem er aðgengileg í gegnum Bookshelf snjallforrit VitalSource. Aðgangurinn er opinn í snjalltækjum og öllum tölvum í gegnum vafra.
“Samstarfið við Vital Source hófst upphaflega haustið 2015 og þá fóru hönd tími samningagerðar við alla útgefendur. Tækniútfærslan var einnig flókið ferli þar sem þarf að tvinna saman ólíkum kerfum.
Við höfðum einnig svolítið fyrir því að fá að hafa þessar bækur inni hjá okkur og vorum í raun hissa að enginn annar á Íslandi væri að gera þetta að neinu ráði, því þetta er klárlega framtíðin og svara þörfum nemenda nútímans.” — Sigurður Pálsson, verkefnastjóri rafbóka á Heimkaup.is
Nemendur í Viðskiptafræði spara 11.965 krónur með því að kaupa allar námsbækurnar á rafrænu formi. Sparnaðurinn er enn meiri ef nemendur leigja rafrænu bækurnar í þeim tilvikum sem það er í boði, en þá munar 14.665 krónum.
Allar bækurnar voru ódýrari í rafrænni útgáfu en á prenti.
Aðferð
Fyrir þessa könnun á verði námsbóka voru valin tvö fjölmenn fög við Háskóla Íslands þar sem allar bækur voru í boði bæði á prenti og rafrænt. Skoðað var verð bóka á prenti hjá Bóksölu Stúdenta og borið saman við verð sömu bóka á rafrænu formi á vef Heimkaup.is.
