Íhaldssemi
Ég er staddur í landi þar sem samkynhneigð er fyrir Hæstarétti í þessum töluðu orðum, en Hæstiréttur hér á eftir að ákveða sig með hvort samkynhneigð sé yfirhöfuð lögleg eða ekki. Því er ég hér giftur maður og hin heppna heitir Matthildur Jósefsdóttir og bíður heima, urrandi spennt eftir að fá folann sinn aftur. En það er ekki eins og samkynhneigð sé það eina sem er tabú hér, allt annað en að vera gagnkynhneigt par í lokuðu sambandi er bannað. Takið að vísu eftir að ég er í mjög íhaldssömum hluta Indlands, í dreifbýli sem virðist oft auka enn á íhaldssemina. Aðstoðarmaður minn á fjármálasviði er þrítugur, einhleypur og hann langar hreint ekkert að gifta sig. Það skapar töluverð vandamál fyrir hann því hann er úr litlu þorpi fyrir utan „borgina“ og það var ekki auðhlaupið að fá leigða íbúð fyrir einhleypan manninn. Ef hann ætti kærustu hefði dæmið verið vonlaust, það er gifting eða ekkert þegar kemur að leigusölum og íbúðum. Einnig er þessi staðreynd að skapa félagsleg vandamál fyrir foreldra hans og systkini heima í þorpinu þannig að hann sér framá að gifta sig á allra næstu árum … Kynlíf utan hjónabands er líka svotil bannað, hér varðar framhjáhald fangelsisvist og þessum ákvæði er beitt, vændi er bannað og kynlíf utan hjónabands er siðferðilega bannað þó það sé ekki í lögum. Þessi íhaldssemi kom mér á óvart verð ég að segja.
En, náttúran finnur sér alltaf leið. Eitt af því sem ég hjó eftir mjög fljótt hér á Indlandi er hvað sama kyn er innilegt hvort við annað. Karlmenn, allt frá unglingsdrengjum upp í rígfullorðna menn leiðast hér eftir götunum, faðmast og láta heiminn sjá að þarna eru bestu vinir á ferð. Sama gerir kvenpeningurinn. Svo rammt kveður að þessu að ég er viss um að Kalla, mínum fyrrverandi, þætti nóg um, en þó fannst honum ég sjálfur vera óttalegur ísmoli þegar kom að handabandi af hálftímagerðinni niður Laugaveg. Þannig að mögulega geta samkynhneigðir Indverjar auðveldlega komist framhjá óvinveittum lagabókstaf og Guddum af báðum kynjum á bakvið eldhúsgardínur. Áfram þeir og þær! Gamanaðessu.