eldur í skóginum

við þráum að sjá eld kvikna í skógi

og sjá skóginn loga

þráum að slökkva eldinn

með vatni liðinna regndaga

yfir tjörninni í botni skógarins

svífa bláar slæður

í sömu tjörn þráum við að sökkva vonum okkar og draumum

þráum að horfa á sviplaus andlit okkar

speglast í skýjuðu vatninu

helmingur hugsana mannsins snýst um eld

hinn um vatn