Undir hvítan morgun

Rúmföt eru fallegust hvít

samt fæddist ég með húð sem rifnar og blæðir úr

stundum fyrirvaralaust

húðin markar sálina, rifbeinin skaplyndið

þess vegna eru mín útstæð og oddhvöss

Ég hef þróað með mér andúð á naglalökkum,

andlitsmöskum og hárspreyi

öllu sem óhreinkar og gerir andrúmsloftið þykkt og þrúgandi

leyfi mér þó að drekka kaffi í rúminu

svart og kraumandi myndar það fullkomið mótvægi

við hvíta fiðrið sem ég vef mig inn í

og vonast til að mýkjast