Nífallt takklæti!
Við erum gríðarlega stolt og þakklát viðskiptavinum okkar fyrir frábæra einkunn í Íslensku ánægjuvoginni.
Viðskiptavinir Nova eru ánægðustu viðskiptavinirnir í farsímaþjónustu, níunda árið í röð.
Við fengum einkunnina 76,4 af 100 mögulegum. Þá var Nova jafnframt næst hæst allra fyrirtækja á Íslandi sem könnunin náði til.
Íslenska ánægjuvogin er könnun sem Samtök iðnaðarins og Stjórnvísi standa sameiginlega að og er framkvæmd í höndum Zenter rannsókna með það að markmiði að útvega fyrirtækjum samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina.
Markmið okkar er að eiga ánægðustu viðskiptavinina á hraðasta farsímanetinu og því er þessi viðurkenning okkur sérlega ánægjuleg og hvatning til að gera enn betur.
Fyrir hönd allra 139 starfsmanna Nova segi ég TAKK!
Liv Berþórsdóttir, forstjóri.