Hvað gerir Conor McGregor að frábæru vörumerki?

Hugleiðingar útfrá sjónarhorni vörumerkjastjórnunar

Magnus Arnason
Aug 26, 2017 · 5 min read
Conor “The Notorious” McGregor

Conor McGregor er íþróttamaður sem keppir á fyrirfram skilgreindum leikvelli sem í hans tilfelli eru blandaðar bardagalistir (MMA) innan UFC bardagasambandsins/fyrirtækisins. Hann mætir til leiks sem kappsfullur og kraftmikill íþróttamaður en um leið skilgreinir hann sig sem skemmtikraft sem masterar leiðina í gegnum módelið sem viðskiptaumhverfi hans býður uppá.

Conor er írskur harðhaus sem á sér dramatíska baksögu sem hann hefur nýtt óspart til uppbyggingar síns vörumerkis. Hann er bláfátækur íþróttamaður frá Dublin sem á sér þann draum heitastan um að skapa sér nafns og sigra titla innan UFC. Framtíðarsýn hans hefur ávalt verið háleit og skýr. Conor hefur verið sérstaklega opinskár um kraft og mátt þess að sjá hluti fyrir sér með nákvæmum hætti (visioning/visualization) sem forsendu þess að skapa eigin framtíð.

Fyrir aðeins 5 árum síðan þáði Conor atvinnuleysisbætur frá Dublinarborg en nú um helgina er gert ráð fyrir að hann fái greidda 100 milljón bandaríkjadollara (um 11 milljarða króna) fyrir að keppa í boxi … já BOXI!


Vörumerkið Conor McGregor
Loforð Conors til áhorfenda og aðdáenda er umfram annað að koma sífellt á óvart. Það gerir hann einmitt með því að skapa sér farveg og form og brjóta sig svo frá því þegar tækifærið er nógu stórt. Hann hefur augljóslega skýrt markmið um að stela senunni með óvæntum hætti í hvert sinn sem það byggir upp hans vörumerki og virði. Hann heldur þannig áhorfendum við efnið.

Karakter og prinsip vörumerkisins er mjög dínamískt. Conor er fyndinn, klókur og skarpur en um leið pirrandi kjaftaskur. Hann stuðar og tuddast áfram en um leið hlær hann af strákslegri innlifun og brosir einlægu brosi. Hann er montinn og hrokafullur og skapar þannig misjafnt umtal en stendur svo við stóru orðin og slær þannig á gagnrýnisraddir. Hann er hetjan og skúrkurinn, töffarinn og ljúfmennið, útlaginn og hversdagshetjann, jókerinn og spámaðurinn. Hann er rugludallur um leið og hann þróar og skapar nýjar leiðir til undirbúnings og æfinga. Hann blandar saman lágmenningu og hámenningu þegar hann berst með hjarta hins fátæka Íra en mætir á blaðamannafundinnn eftir bardaga á Rolls-Royce klæddur í sérsaumuð jakkaföt. Fólk hatar að elska hann og elskar að hata hann.

Þrátt fyrir allan fíflaganginn er hann í grunninn íþróttamaður sem hefur sannað án vafa að hann er í fremsta flokki í sinni íþrótt.

Hann selur sig dýrt en gefur viðskiptafélögum og áhorfendum mikið fyrir peninginn. Hann er klókur í sinni vörumerkjauppbyggingu því hann leggur “allt undir” þegar hann hefur engu að tapa en hefur líka sýnt að hann hefur kjark til að leggja orðsporið að veði þegar tækifærið er nógu stórt til að komast á næsta level.

(Þegar hann barðist í 2 þyngdarflokkum uppfyrir sig og nú þegar hann berst í íþrótt sem er ekki hans má segja að hann hafi engu að tapa. Þegar hann fór fram á re-match við Nate Diaz lagði hann orðsporið að veði en vann og margfaldaði virði sitt).

Vörumerkið er auðþekkjanlegt og litríkt. Hann talar með þéttum írskum hreim, er myndskreyttur með auðþekkjanlegum húðflúrum, hann mætir til leiks með nýja hárgreiðslu og skegg í hvern bardaga, berst undir írskum fána og á sínar venjur og hefðir t.d. með því að krjúpa fyrir bardaga og reisa hendurnar þráðbeinar og hátt þegar hann fagnar að bardaga loknum.


Conor McGregor er klókur markaðsmaður
Hann kann að sjá fyrir tækifæri til að móta og þróa sitt vörumerki og kemur undirbúinn til leiks. Hann kallar sig mörgum mismunandi nöfnum og kemur með undirbúna frasa sem hann margítrekar í kringum hvern bardaga.

Conor “The Notorious” MacGregor, The Champ Champ & Mystic Mac eru allt einn og sami maðurinn. “We are not here to take part, We are here to take over!”, “Precision beats power, and timing beats speed”, “I’d like to take this change to apologise … to absolutely nobody” “from nothing, to something, to everything” eru allt dæmi um undirbúna margítrekaða frasa úr hans munni.

The Champ Champ

Conor er svo einbeittur í sinni vörumerkjauppbyggingu að hann passar meira að segja uppá að myndir séu uppstilltar þannig að myndmálið komi skýrum skilaboðum til skila svo sagan sé rituð rétt og upplifun sé í anda sýnarinnar.

(Skýrasta dæmið um það mátti sjá þegar hann krafðist þess að fá tvö belti afhent þegar hann varð fyrstur allra til að tryggja sér tvo titla í tveim þyngdarflokkum á sama tíma. Hann hreinlega neitaði að taka viðtal eftir bardagann fyrr en hann fengi bæði beltin. Hann gat ekki verið skýrari eftir að hafa fengið annað beltið afhent “Where the fu** is me second belt? I’ve already got this one! Cheap fu***rs”. Stuttu viðtali lauk svo þegar hann hafði fengið bæði beltin afhent, eitt á hvora hönd).

Síðast en ekki síst má taka fram að Conor er ötull við að sinna aðdáendum sínum og sýnir þeim mikið þakklæti bæði með því að leggja margsinnis úr leið sinni til að mæta þeim sem og í allri orðræðu.

Allir sem hyggjast byggja upp sterk vörumerki geta lært mikið af Conor “The Notorious” McGregor.


Samantekt:

  • Skýr framtíðarsýn er lykilatriði og forsenda vel heppnaðar vörumerkja
  • Varan er góð og stendur undir væntingum
  • Varan er vel staðsett á leikvelli sem hefur fyrirfram skilgreint tekjumódel í miklum vexti
  • Baksagan er dramatísk og framtíðarsýnin er skýr
  • Conor er að mörgu leiti eins og andstæðingar hans en á svo margan hátt er hann allt öðruvísi og sker sig þannig frá þeim
  • Conor uppfyllir loforð vörumerkis um að koma á óvart í hvert skipti sem er komið á framfæri með skýrum og skipulögðum hætti
  • Conor knýr fram sterkar tilfinningar hjá allfelstum sem með honum fylgjast með dínamískum og óvæntum hætti
  • Tónninn, útlitið, myndmáið, hefðirnar og venjurnar skapa um leið sterka tengingu við aðdáendur en um leið mörg tækifæri til að brjóta formið og vekja þannig athygli
  • Conor hefur skapað sitt eigið tungumál með frösum og tón sem gefur vörumerkinu ríkari blæ sem getur búið til bæði hliðhollustu og umtal

)

    Magnus Arnason

    Written by

    Welcome to a place where words matter. On Medium, smart voices and original ideas take center stage - with no ads in sight. Watch
    Follow all the topics you care about, and we’ll deliver the best stories for you to your homepage and inbox. Explore
    Get unlimited access to the best stories on Medium — and support writers while you’re at it. Just $5/month. Upgrade