ÆGISSÍÐAN Í DAG

ægissíðan og stelpa í grænu íþróttaskónum

sem fylgir skugga sínum meðfram þessum götum

með sólgleraugun sem lita heiminn mörgum litum

ægissíðan fyllir henni af von í hjartað

að lífið geti verið aðeins meira en þetta

likami hennar fyllist af frelsi og volga golan leikur við hárið

indie popp í eyrunum og það er það eina sem virkar í svona veðri

strætóinn er og seinn við keilugranda en henni er alveg sama

því heimurinn er ljúfur og bragðast vel í dag

hann er sætur en ekki væminn

alveg eins og dagurinn í dag

)