Að ná árangri
Ég hugsa daglega um hvernig ég get náð árangri í öllu sem ég geri. Vinnulega, persónulega, andlega, félagslega. Það er ekki nema ár síðan að ég (32ja ára) lærði hversu mikilvægt það er að hafa jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Ég lærði það með því að upplifa svokallað burnout sem gerði það að verkum að ég var nánast óvinnufær svo mánuðum skiptir.
Ef maður stefnir hátt þá er svo auðvelt að eyða línunni á milli einkalífs og vinnu, þangað til einn daginn áttar maður sigs á að kapphlaupið upp metorðastigann er ráðandi í öllu hjá manni. Niðurstaðan hjá flestum sem ég hef talað við og lesið greinar og bækur eftir framúrskarandi fólk í atvinnulífinu, er að finna jafnvægi vinnulega, persónulega, andlega, félagslega. Ná að blómstra á öllum þessum sviðum, jafnt. Ná að halda andlegri og líkamlegri heilsu, með því að rækta sjálfan sig reglulega. Vera þolinmóður. Slaka á, safna kröftum. Brenna ekki kertið frá öfugum enda, hugsa klifrið sem langhlaup og hafa gaman að því.