Stytting vinnuvikunnar — samkomulag fimm stéttarfélaga BHM við ríkið

Tinna Finnbogadóttir
Nov 6 · 4 min read

Stytting vinnuvikunnar er mér hjartans mál. Ekki af því að ég er löt eða finnst vinnan mín leiðinleg heldur af því að það að eyða meiri tíma með sjálfri mér og þeim sem mér þykir vænt um er einfaldlega eitt af mínum grunngildum. Hraði samfélagsins fær sífellt meiri (neikvæða) athygli og flestir eru sammála um að það að hægja á og rækta garðinn sinn sé almennt gott fyrir manneskjuna.

Það hefur alls ekki komið mér á óvart hversu góðum árangri stytting vinnuvikunnar hefur náð bæði í tilraunaverkefnum og í varanlegu fyrirkomulagi á þeim vinnustöðum sem hafa lagt í þá vegferð. Almennt hefur stytting vinnuvikunnar ekki dregið úr afköstum eða framlegð og skilað færri veikindadögum og hamingjusamara starfsfólki.

Ég var því vægast sagt spennt þegar að stéttarfélagið mitt tilkynnti að það hefði náð samkomulagi við ríkissjóð um kjarabætur sem fælu m.a. í sér styttingu vinnuvikunnar. Í gögnum sem stéttarfélagið sendi mér er talað um styttingu vinnuvikunnar úr 40 stundum í 36. Mér er send reiknivél sem býður mér að reikna hver sú stytting er umreiknuð í launahækkun í krónum. Færri stundir fyrir sömu laun þýða fleiri krónur á vinnustund. Gott og vel. Mér er sendur texti þar sem meðal annars kemur fram: “Stytting vinnuvikunnar í 36 klukkustundir telur í heild sinni 23 daga á ári.” Þetta hljómar vel — eiginlega fullkomið! En ég hef unnið nógu lengi með lögfræðingum til að vita að það borgar sig að kíkja á frumtextann. Svo ég fer í samkomulagið sjálft. Þar segir:

“Vinnutími: Vinnuvika starfsmanns í fullu starfi er 40 stundir nema um skemmri vinnutíma sé sérstaklega samið. Sjá fylgiskjal 1.”

Einmitt það já. Í fylgiskjali 1:

“Með sérstöku samkomulagi meirihluta starfsfólks […] er heimilt að stytta vinnuvikuna í allt að 36 virkar vinnustundir á viku samhliða niðurfellingu greinar 3.1. í kjarasamningi. […] Náist ekki samkomulag um breytt skipulag vinnutíma styttist vinnutími starfsfólks sem nemur 13 mínútum á dag.”

Og hvað þýðir þetta svo? Annað sem ég hef lært af því að vinna með lögfræðingum er að skilgreiningar skipta máli. Það er ekki tilviljun að talað sé um “vinnutíma” annars vegar og “virkar vinnustundir” hins vegar í sama samkomulaginu. Þetta eru mismunandi skilgreiningar sem þýða mismunandi hluti. Í 40 tíma vinnuviku eru virkar vinnustundir c.a. 37 tímar, þ.e. vinnuvikan að frádregnum hádegismat (35 mínútur fimm daga vikunnar). Það er því heimild til þess að stytta vinnuvikuna um rúman klukkutíma á viku ef samkomulag næst um það en fella á sama tíma niður grein 3.1. í kjarasamningi. Um hvað skyldi hún vera? Hún er um matar- og kaffitíma á dagvinnutímabili. Ef það næst ekki samkomulag um þessa útfærslu á vinnustaðnum getur vinnuvikan samt styst um þennan rúma klukkutíma (65 mínútur) samkvæmt samkomulaginu.

Þetta eru vitaskuld vonbrigði. Mestu vonbrigðin eru þó þau að stéttarfélagið haldi því fram að til standi að stytta vinnuvikuna í 36 tíma með þeim hætti að stytta viðveru úr 40 tímum í 36 tíma. Það stendur til að stytta virkar vinnustundir í 36 tíma — úr 37 — og mögulega fella matartíma niður án þess að það skili einhverjum sérstökum ágóða hvað virkar vinnustundir varðar. Ég átta mig hreinlega ekki á því hvernig það á að virka. Hvernig kemst fólk í gegnum heilan vinnudag án matarhlés? Flestir sem þekkja mig vita að það er a.m.k. ómögulegt fyrir mig. Á ég þá að stimpla mig út í matarhléi? Er nokkur sannfærður um að það sé einhver stytting á vinnuvikunni?

Svona lítur kynningarefni frá Fjársýslu ríkisins um styttingu vinnuvikunnar í 36 stundir út, samkvæmt þessu samkomulagi:

Dagleg stytting í vinnuviku þar sem virkar vinnustundir eru 36 — næst með því að sleppa matarhléi.

Því er hampað að með þessari styttingu um 48 mínútur á dag, sé hægt að taka sér frí tvo daga í mánuði með því að vinna fulla vinnudaga alla aðra daga og er það sýnt svona:

Stytting vinnuviku í 36 virkar vinnustundir með því að sleppa matarhléi — mánuður með tveimur auka frídögum

Semsagt. Ef þú vinnur frá 8 til 16, án þess að taka þér nokkurt hlé í 18 daga þá geturðu tekið þér tvo daga í frí á 20 daga tímabili. Þessu væri hægt að ná í núverandi fyrirkomulagi með því að vinna frá 8 til 16:30 alla daga og eiga frí tvo daga á móti. Sú 36 stunda vinnuvika sem lofað er með þessu samkomulagi er það alls ekki.

Það eru að vissu leyti vonbrigði að eingöngu hafi náðst að semja um raunverulega styttingu vinnuvikunnar um 65 mínútur. Ég hef ekki enn myndað mér skoðun á því hvort ég telji það gott fyrsta skref eða afleita byrjun. Ég er hins vegar mjög ósátt við villandi framsetningu stéttarfélagsins á raunverulegu efni samkomulagsins og óttast að ef samkomulagið verður samþykkt að það muni ekki skapa sátt á vinnustöðum. Mér finnst jafnvel líklegt að það geti dregið úr þeim meðvindi sem stytting vinnuvikunnar hefur verið að fá síðustu ár í samfélagi þar sem fólk metur tíma utan vinnu sífellt meira.

— — — — — — — — — — — — —— — — — — — — — — — — — —

Það athugist: Umfjöllunin byggir á því hvernig þetta samkomulag slær mig, skrifstofumanneskju sem sinnir ekki afgreiðslustörfum og hefur því ekki mjög skilgreindan eða afmarkaðan viðverutíma innan hvers dags. Það er ekki útilokað að útfærsla samkomulagsins gagnist öðrum betur en mér.

Welcome to a place where words matter. On Medium, smart voices and original ideas take center stage - with no ads in sight. Watch
Follow all the topics you care about, and we’ll deliver the best stories for you to your homepage and inbox. Explore
Get unlimited access to the best stories on Medium — and support writers while you’re at it. Just $5/month. Upgrade