Heimkaup.is styrkir Bleiku slaufuna

Þann 14. október, á degi Bleiku slaufunnar mun Heimkaup.is bjóða bleikar vörur á tilboði. 15% af ágóða sölu þeirra mun renna til Bleiku slaufunnar. Vörurnar verða af ýmsu tagi, íþróttaföt, snyrtivörur, leikföng og raftæki svo eitthvað sé nefnt.
Bleika slaufan er fáanleg á Heimkaup.is. Allur ágóði rennur til Bleiku slaufunnar en í ár verður öllu söfnunarfé varið til endurnýjunar tækjabúnaðar til skipulegrar leitar að brjóstakrabbameini.
Því ættu flestir að geta fundið vörur við sitt hæfi á góðu verði — og styrkt Bleiku slaufuna í leiðinni.