Áætlaður sparnaður í Kjördæmum
Hæ, ert þú ekki örugglega með Kjördæmi? Þá hefur þú væntanlega séð töluna Áætlað áður en þú virkjaðir Kjördæmið.

Ef þú hefur velt vöngum yfir þeirri tölu og hvað hún þýði, þá skaltu láta eftir þér að lesa aðeins lengra. Ef þú ert hins vegar með það á hreinu, þá gæti samt verið gaman að komast að því hvernig hún er reiknuð.
Meiri (og betri) upplýsingar
Okkur hjá Meniga finnst mikilvægt að þær ákvarðanir sem þú tekur um hvernig þú nýtir þína fjármuni séu byggðar á eins greinargóðum upplýsingum og mögulegt er. Það er nú einu sinni einn megintilgangur Meniga.
Því datt okkur í hug að í stað þess að sýna eingöngu afsláttarprósentu Kjördæmis (til dæmis 30%), þá væri snjallt að áætla fyrir þig hvað þú gætir verið að fara að spara á Kjördæminu, í krónum talið, miðað við þína venjubundnu neyslu (til dæmis 5.000 kr.)
Það er nefnilega þannig að þó að afsláttarsprósentan sem býðst geti verið há, þá gæti upphæðin sem sparast þegar Kjördæmið er notað ekki verið sérstaklega há og því haft minni þýðingu. Auðvitað keppumst við um að þetta fari saman (há afsláttarprósenta og mikið notagildi) en eftir stendur að áætlaður sparnaður í beinhörðum peningum verður alltaf betri mælikvarði á fjárhagslegan ávinning en prósentutalan sjálf og því er mjög gagnlegt að velta Kjördæminu fyrir sér í því ljósi.
Að reikna áætlaðan sparnað
Áætlaðan sparnað reiknum við með því byggja bæði á þinni venjubundnu neyslu sem og neyslu annarra í Meniga hagkerfinu, ef þess þarf.
Segjum sem svo að matvörubúðin Hagkjör (ekki til, bara dæmi) myndi vilja bjóða þér 15% Kjördæmi til að lokka þig í viðskipti. Hagkjör er í útgjaldaflokknum matarinnkaup í Meniga sem þýðir að ef þú eyðir að jafnaði 110.000 kr. í matarinnkaup myndi það þýða 16.500 kr. í endurgreiðslu, ef þú myndir beina allri þinni neyslu í Hagkjör á meðan á Kjördæminu stæði.
Hins vegar segir Meniga hagkerfið okkur einnig að viðskiptavinir Hagkjara verja um 30% af sínum matvöruútgjöldum að meðaltali í þeirri verslun. Við köllum það hlutdeild í veski. Þar sem þú hefur ekki viðskiptasögu hjá Hagkjörum (þess vegna ætla Hagkjör jú að lokka þig í viðskipti) áætlum við því að þú munir eyða um 33.000 kr. (30% af 110.000 kr.) þar á meðan á Kjördæminu stendur og því verður áætlaður sparnaður af Kjördæminu 5.000 kr. (15% af 33.000 kr.).
Ef þú værir hins vegar í reglulegum viðskiptum við Hagkjör þyrftum við ekki að taka neyslu Meniga hagkerfisins með í reikninginn. Þá myndi neysla þín ein nægja. Hagkjör myndi þá til dæmis bjóða þér 15% Kjördæmi sem þakklæti fyrir þín viðskipti og við myndum gera ráð fyrir að viðskipti þín við Hagkjör héldust óbreytt. Þannig að ef þú verslaðir fyrir 33.000 kr. að jafnaði við Hagkjör myndi það að sama skapi þýða 5.000 kr. í áætlaðan sparnað.
Blessuð jaðartilfellin
Þegar við áætlum sparnað verðum við auk þess að taka tillit til þess hvort að um þak á endurgreiðslu er að ræða í Kjördæminu. Ef Hagkjör hefði í dæmunum hér að ofan sett hámarkið á heildarendurgreiðslu í 3.000 kr. hefði áætlaður sparnaður ekki orðið hærri en sú tala.
Í útgjaldaflokkum, eins og skyndibita, þar sem neytendur versla að jafnaði við mörg fyrirtæki gerum við auk þess ráðstafanir til að áætlaður sparnaður verði ekki lægri en sem nemur endurgreiðslu af lægstu upphæðum sem neytendur í Meniga hagkerfinu greiða að jafnaði hjá viðkomandi fyrirtæki.
Að lokum
Eins og gefur að skilja er áætlaður sparnaður, tja, aðeins áætlun. Það eru fjölmargir þættir sem ráða því hvernig viðskiptum þínum verður háttað á meðan á Kjördæminu stendur. Þú getur til dæmis valið að versla fyrir hærri upphæð í útgjaldaflokkinum vegna Kjördæmisins en þú gerir að jafnaði og þar af leiðandi safnað hærri endurgreiðslu með Kjördæminu.
Áætlaður sparnaður er hins vegar gagnlegur til að þú sjáir áhrif Kjördæmisins á venjubundin útgjöld þín og hvaða fjárhagslega ávinning það muni hafa í för með sér.
Það er auk þess gaman að segja frá því að við erum oft ansi hittin á áætlaðan sparnað hjá viðskiptavinum Kjördæma. Þó erum við einnig stöðugt að leita leiða til að bæta áætlun okkar og það væri gaman að heyra frá þér ef þú hefur ábendingu um hvernig það mætti gera.
Eitt er víst að það er sársaukalaust að nýta sér Kjördæmi og þú tapar aldrei á því.
Bless í bili, Helgi Ben.
Originally published at meniga.is on April 9, 2015.