6 einföld skref til að halda utan um hvað brúðkaupið kostaði

Ert þú að fara að gifta þig? Með Meniga er auðvelt að halda utan um allan kostnað sem tengist brúðkaupinu og fá skemmtilegt yfirlit yfir hvað allt saman kostaði og hvenær það var keypt. Hátt í 2000 hjónavígslur fara fram á Íslandi á hverju ári sem eiga það flestar sameiginlegt að fara vel fram úr áætlunum. Þarna getur Meniga hjálpað með 6 einföldum skrefum.

Skref 1: Veldu færslu sem tengist brúðkaupinu þínu

Skref 2: Merktu færsluna sem “Brúðkaup”

Þú getur sömuleiðis bætt við athugasemd ef þú vilt muna nákvæmlega hvað var keypt. Gerðu þetta við allar færslur sem tengjast brúðkaupinu.

Skref 3: Leitaðu að orðinu brúðkaup

Þú getur einnig leitað eftir merkimiðanum þínum og um leið sérð þú allar færslurnar sem þú hefur merkt. Ef þú hefur sett inn athugasemdir getur þú sömuleiðis leitað eftir þeim.


Skref 4: Skoða nánar?

Ekkert mál. Smelltu á skýrslur, veldu merkimiðann brúðkaup og passaðu að stilla tímabil fyrir brúðkaupið til að sjá allar færslurnar.

Skref 5: Leiktu þér í kerfinu

Skoðaðu til dæmis eyðsluna í brúðkaupinu eftir mánuðum eða vandað heildaryfirlit sem sýnir nákvæmlega í hvaða flokkum þú eyddir hlutfallslega. Algengt er að fyrstu útgjöldin vegna brúðkaupsins komi fram mörgum mánuðum fyrir brúðkaupið. Hafðu einnig í huga að í mörgum brúðkaupum er oft mikið af ófyrirséðum útgjöldum síðustu vikum og dögum fyrir stóra daginn. Þá er sömuleiðis oft hægt að skila einhverjum varningi sem kláraðist ekki, t.d. áfengi hjá ÁTVR ef kvittanir eru geymdar og fá ágætis summu til baka.

Skref 6: Eiga fyrir brúðkaupinu? Settu þér markmið

Ef þú ert í brúðkaupshugleiðingum getur Meniga hjálpað þér að safna fyrir markmiðinu. Smelltu á markmið, settu inn sirka þá upphæð sem þú heldur að þú þurfir að safna fyrir brúðkaupinu og hversu mikið þú ert tilbúinn að safna á mánuði. Sjáðu svo markmiðið fyllast upp með skemmtilegum tilkynningum þegar nær dregur.

Að lokum má nefna að þessa aðferð má auðvitað nota til að halda utan um alla stóra viðburði á borð við fermningar eða stórafmæli eða tímabil á borð við sumarfrí eða jólin.