Breytingar á flokkunartré Meniga

Við munum bráðum uppfæra Meniga með breytingum sem við erum sannfærð um að þið verðið ánægð með.

Breytingarnar fela í sér að einfalda flokkunartré Meniga, sem ákvarðar hvaða útgjöld tilheyra hvaða útgjaldaflokki. Síðustu mánuði höfum við fengið þónokkrar ábendingar frá notendum Meniga um hvernig hægt sé að betrumbæta flokkunartréð okkar og gera upplifunina af kerfinu þannig betri.

Flokkunartré Meniga hefur hingað til skipst í 18 yfirflokka og fjölmarga undirflokka. Í stuttu máli fela breytingarnar í sér sameiningu á nokkrum yfirflokkum og undirflokkum og samhliða því nafnabreytingu á nokkrum flokkum í takt við notkun og óskir notenda Meniga. Dæmi um breytingar:

  1. „Áfengi” fært frá “Skemmtanir” undir “Verslun- og þjónusta”.
  2. „Internet“ breytt í „Sími og internet“.
  3. Tvær nýjar flokkanir fyrir tryggingar og kaffihús.

Ef þú lendir í einhverjum vandræðum með breytingarnar skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur á support@meniga.is.


Originally published at meniga.is on April 16, 2015.