Endurgreiðsla í Kjördæmum

Nýlega setti Meniga í loftið nýja og spennandi virkni sem nefnist Kjördæmi. Kjördæmi eru sérsniðin endurgreiðslutilboð frá fyrirtækjum sem notendum býðst að virkja. Þegar notendur versla fá þeir síðan hluta af vöruverði og þjónustu endurgreidda á bankareikning að eigin vali.

Hvernig virkar þjónustan?

  1. Þú virkjar Kjördæmi sem birtist í Meniga. Afslátturinn hleðst sjálfvirkt á öll kort sem eru skráð hjá þér í Meniga (og þínum maka ef þið eruð tengd í Meniga).
  2. Þú greiðir fullt verð. Þú þarft ekkert að prenta út, muna eftir eða sýna. Starfsfólk þarf ekki að vita hvort þú sért með virkt Kjördæmi.
  3. Afslátturinn endurgreiðist 18. hvers mánaðar til notenda. Þú sérð afsláttinn hlaðast upp í Meniga og færð uppsafnaðan afslátt frá 22.-21. mánaðarins á undan millifærðan á þinn bankareikning.

18. hvers mánaðar fá allir notendur sem versluðu frá tímabilinu 22.-21. mánaðarins á undan endurgreiðslu. Sem dæmi þá fengu allir þeir sem voru með virkt Kjördæmi og versluðu á tímabilinu 22. nóvember — 21. desember 2014 endurgreiðslu á bankareikninginn sinn 18. janúar 2015. Ef sambærileg dæmi eiga við um þig en endurgreiðslan hefur ekki ennþá borist, kannaðu þá eftirfarandi:

A) Vantar upplýsingar um bankareikning og kennitölu? Við millifærum endurgreiðsluna á reikning að eigin vali. Ef þú ert ekki búinn að skrá inn reikningsnúmer og kennitölu nú þegar getur þú sett upp þínar stillingar með því að skrá þig inn í Meniga, velja stillingar, velja Kjördæmi og skrá inn reikningsnúmer og kennitölu (Hlekkur hér). Þú getur treyst því að endurgreiðslan sem hefur safnast upp kemur eigi síðar til þín en 18. febrúar næstkomandi og framvegis 18. hvers mánaðar.

B) Átti færslan sér stað eftir 21. mánaðarins á undan? Allar færslur frá tímabilinu 22.-21. hvers mánaðar, eru greiddar út þann 18. næsta mánaðar. Til dæmis þá myndi einstaklingur sem verslaði á tímabilinu 22. nóvember — 21. desember fá endurgreiðslu 18. janúar. Ef að einstaklingur verslaði eftir 21. desember fær hann endurgreiðsluna 18. febrúar

C) Kom eitthvað annað uppá? Láttu okkur þá vita! Sendu á okkur línu á support@meniga.is, við skoðum málið, leysum það og látum þig vita með framhaldið.


Originally published at meniga.is on January 30, 2015.