Fréttatilkynning frá Meniga
Frá og með deginum í dag fá Íslendingar aðgang að nýju snjallsímaforriti Meniga sem mun bylta því hvernig fólk umgengst fjármál sín frá degi til dags. Forritið er fáanlegt fyrir iPhone og Android snjallsíma, notendum að kostnaðarlausu. Íslendingar eru fyrstir til að njóta góðs af því þróunarstarfi sem Meniga hefur unnið á þessu sviði, en fyrirtækið er leiðandi á heimsvísu í gerð heimilisfjármálahugbúnaðar og nær til meira en tuttugu milljón neytenda. Markmið Meniga er að gera fólki kleift að skilja betur heimilisfjármálin og þannig nýta ráðstöfunarfé sitt betur. Á komandi mánuðum mun Meniga innleiða vöruna í fleiri löndum.
Tíðni upplýsinga lykill að betri yfirsýn yfir fjármálin
Hugmyndafræði Meniga byggist á þeirri staðreynd að því oftar sem fólk nálgast upplýsingar um fjármál sín, þeim mun líklegra er að það öðlist góða yfirsýn og nái stjórn á þeim. Mikil áhersla er lögð á að gera alla virkni einfalda, skemmtilega, aðgengilega og upplýsandi. Sem dæmi má nefna að með einum smelli á færslu geta notendur séð nákvæmlega hversu miklu þeir hafa eytt í matarinnkaup og í hvaða verslunum. Sama gildir um aðra útgjaldaflokka. Meniga sendir einnig gagnlegar og skemmtilegar tilkynningar til notenda með reglulegu millibili í þeim tilgangi að veita aukna innsýn í fjármálin.
Fyrirtæki endurgreiða hluta af vöruverði og þjónustu til Meniga notenda
Mikilvægur hluti af nýju lausninni er að Meniga mun bjóða notendum upp á sérsniðin endugreiðslutilboð og afslætti frá fyrirtækjum sem endurgreiða notendum hluta af kaupverði í formi mánaðarlegrar endurgreiðslu. Hugbúnaður Meniga greinir hvaða tilboð passa hverjum notenda byggt á neyslusögu hans þannig að notendur sjá einungis endurgreiðslutilboð sem þeir eru mjög líklegir til að vilja, til dæmis í verslunum sem þeir versla nú þegar í eða sambærilegum búðum. Það má segja að hugbúnaðurinn geri neytendum kleift að láta fyrirtæki keppast um viðskipti sín í gegnum Meniga. Mikilvægt er að árétta að fyrirtækin fá aldrei neyslusögu eða nokkrar upplýsingar um einstaka notendur, einungis ópersónugreinanlegar samantektir um almenna neysluhegðun og hversu margir sjá og nýta sér einstök tilboð.
„Við viljum gera alla neytendur upplýstari um fjármálin sín en nokkru sinni fyrr og hjálpa þeim að fá yfirsýn og betri upplýsingar um hvernig ólík tilboð hafa áhrif á þeirra fjárhag.” segir Kristján F. Kristjánsson, framkvæmdastjóri íslenskra viðskipta hjá Meniga. „Við erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum á Íslandi þar sem fyrirtækið er stofnað og hátt í 80% starfsmanna hafa aðsetur með því að bjóða lausnina öllum neytendum að kostnaðarlausu“.
Spurt og svarað
Hvar skrái ég mig í Meniga?
Þú ferð á meniga.is og smellir á „nýskráning”. Farsímanotendur eru einnig hvattir að sækja nýtt farsíma “app” frá forsíðu meniga.is með nýrri og skemmtilegri virkni í Meniga.
Hverjir geta skráð sig í Meniga?
Allir sem eru í viðskiptum við Arion banka, Íslandsbanka eða Landsbankann. Til að tengjast Meniga þarft þú að tengja Meniga við reikningana þína og kort hjá einum eða fleiri af viðskiptabönkunum. Makar geta einnig sameinað alla reikninga og kort í Meniga til að fá heildaryfirsýn yfir fjárhag heimilisins.
Get ég tengt alla reikninga og kort við Meniga?
Já. Þú getur tengt alla reikninga og kort við Meniga. Reikningar og kort sem þú tengir við Meniga gegnum netbanka Arion banka, Íslandsbanka eða Landsbankans uppfærast sjálfvirkt en reikninga og kort frá öðrum bönkum verður þú að setja handvirkt inn í Meniga og flytja færslur inn á þá úr netbankanum þínum.
Hvað eru Kjördæmi og hvernig virka þau?
Kjördæmi eru sérsniðin endurgreiðslutilboð í Meniga. Ef þú nýtir þér Kjördæmi þá getur þú fengið hluta af útgjöldum þínum endurgreidd með mánaðarlegri greiðslu. Kjördæmi munu birtast þér á vef meniga.is og í farsímaappinu. Kjördæmi gæti til dæmis verið afsláttur í tiltekinni verslun. Ef þú hefur áhuga á að nýta þér Kjördæmið, virkjar þú það og ert í kjölfarið beðin(n) um að samþykkja skilmála Kjördæma, hafir þú ekki gert það áður. Síðan verslar þú þar sem Kjördæmið á við og færð endurgreiðsluna greidda inn á reikning að eigin vali. Í stuttu máli: þú virkjar, verslar og færð endurgreitt.
Hvenær get ég átt von að fá mitt fyrsta Kjördæmi?
Nokkur þúsund Meniga notendur hafa nú þegar aðgang að Kjördæmum og birtast þau notendum þegar þeir skrá sig inn í Meniga. Í hverjum mánuði munum við svo bæta við nokkrum þúsund notendum þangað til allir notendur fá þau reglulega. Líkurnar á því að notendur fái Kjördæmi aukast talsvert hjá þeim sem muna að skrá inn í Meniga öll sín kort og reikninga og sömuleiðis aukast líkurnar ef notendur sækja farsímaappið hjá Meniga.
Hversu mikið spara ég með því að nýta mér Kjördæmi í Meniga?
Það getur verið afar breytilegt og fer eftir neyslu þinni og hversu virkur notandi þú ert. Við vonumst til að hjálpa notendum að spara sem mest sem gæti þýtt tugi og upp í hundruð þúsunda á hvern notanda á ársgrundvelli hjá virkum notendum.
Öryggi- og persónuvernd lykilatriði í öllum rekstri Meniga
Gagnaöryggi er tryggt með margvíslegum hætti á vef Meniga. Í fyrsta lagi er vefur Meniga tæknilega eins öruggur og vefur fjármálastofnana og í raun öruggari þar sem Meniga hefur eingöngu lesaðgang að reikningum notenda þannig að ekki er hægt að framkvæma neinar fjárhagslegar aðgerðir á Meniga.is. Í öðru lagi ábyrgist Meniga alla meðferð upplýsinga um notendur. Enginn þriðji aðili mun nokkurn tímann fá aðgang að neyslusögu eða öðrum persónugreinanlegum upplýsingum um notendur í Meniga og gildir stíf öryggis- og persónuverndarstefna varðandi alla meðhöndlun upplýsinga um notendur í Meniga (Sjá nánar á vef Meniga undir öryggis- og persónuverndarstefna Meniga). Að lokum má nefna að allir notendur Meniga þurfa að samþykkja sérstaka notkunarskilmála til að nýta sér þjónustu Meniga og mun Meniga ávallt upplýsa notendur ef einhverjar breytingar verða gerðar á þeim skilmálum.
Originally published at meniga.is on November 14, 2014.