Meniga hlýtur verðlaun á Finovate
Meniga hlaut verðlaun fyrir bestu tækninýjungina á ráðstefnunni Finovate Europe 2015 sem haldin var í London fyrr í þessari viku en Finovate er ein þekktasta og virtasta ráðstefna heims um tækninýjungar í fjármálatengdum hugbúnaði.
Finovate ráðstefnan er haldin árlega á vestur- og austurströnd Bandaríkjanna sem og í London þar sem kynntar eru frambærilegar nýjungar á sviði fjármálatækni. Eingöngu framsæknustu fyrirtækin á þessu sviði fá að taka þátt en fara þarf í gegnum erfitt forval. Meniga hefur verið valið til þátttöku á þessum stóra viðburði síðan 2011 og vann í ár, í þriðja sinn á fimm árum, hin eftirsóttu “best of show” verðlaun á ráðstefnunni.
Yfir 70 kynningar fóru fram þar sem Meniga kynnti til leiks nýja Meniga appið. Í appinu gefst notendum tækifæri að nálgast fjármál sín í gegnum “Meniga Tímalínuna”, þar sem fjármál notenda er varpað upp með nýstárlegu viðmóti og hönnun sem aðstoðar notendur að öðlast mun betri skilning og yfirsýn eigin fjármálaum og jafnframt að gera þau skemmtilegri. Sérstök áhersla var á nýrri virkni sem felur í sér að notendur Meniga fái tilboð frá kaupmönnum í þeim vöru- og þjónustuflokkum sem notendur hafa kaupsögu í. Notendur Meniga geta því treyst að fá góð kjör frá kaupmönnum á stöðum sem notendur eru vanir að versla og samstundis séð hvort að tilboð sem birtast henti viðkomandi út frá fyrri kaupsögu. Að sama skapi geta kaupmenn veitt betri afslætti en áður, þar sem minni sóun fer í markaðskostnað en á öðrum miðlum þar sem kaupmenn neyðast til að versla tilboð og auglýsingar sem ná til stærri hóps notenda sem hefur ekki áhuga á því sem auglýst er.
Meniga appið er þegar í boði á Íslandi í dag og bætast reglulega við nýjungar í bæði appinu og á meniga.is fyrir alla notendur Meniga á Íslandi. Meniga hefur notið góðs af því að hafa stóran virkan notendahóp á Íslandi sem hefur verið virkur í endurgjöf sem og frábæru samstarfi við stóru viðskiptabankana þrjá, Arion Banka, Landsbankann og Íslandsbanka.
Skemmtileg tíst frá viðburðinum úti:
We won Best Of Show for the third time at #Finovate — We are so grateful to everyone for liking our work!
— Meniga (@meniga) February 11, 2015
.@meniga has raised $8.5M, has 100+ employees, and 20M+ online banking users #Finovate
— Finovate (@Finovate) February 10, 2015
Judging by the Twitter buzz the @meniga demo was a resounding success! #PFM once again a hot topic at #Finovate pic.twitter.com/MTEz7L92bW
— Datamonitor FS (@DatamonitorFS) February 10, 2015
@meniga Great white-label PFM & online banking solutions, simple & easy to use and truly relevant #fintech #finovate pic.twitter.com/WtXLcZl0vn
— FINTECH Circle (@FINTECHCircle) February 10, 2015
Feel sorry for anyone that has to follow @meniga In the running order…#sidetracked #finovate
— Paul Loberman (@ploberman) February 10, 2015
Very slick presentation from @meniga and the best UX today. Another resulting when can I have this presentation. #Finovate
— David M. Brear (@davidbrear) February 10, 2015
Impressive stuff from @meniga .. Wish my bank did this!! #Finovate
— Aneesh Varma (@AneeshVarma) February 10, 2015
Originally published at meniga.is on February 13, 2015.