Sérstaka íslenska sumarið og spánarsólin

Kristín Hrefna
Meniga Iceland
Published in
2 min readOct 12, 2015

Almenn eða sérsniðin endurgreiðslutilboð

Íslenska sumarið eru takmörkuð gæði sem við í Meniga elskum en því miður getur sólin ekki alltaf skinið á okkur og hún skín næstum aldrei á alla í einu. Það er því stundum mjög indælt að láta spánarsólina skína á sig en hún er nógu sterk til að skína á alla í einu. Við í Meniga elskum sólina en við elskum líka að spara með endurgreiðslutilboðum.

Í Meniga erum við með tvær megin tegundir af endurgreiðslutilboðum, almenn og sérsniðin. Báðar tegundir eru valmöguleikar fyrir þig til þess að hjápa þér að spara. Almennu endurgreiðslutilboðin fara á alla þá sem hafa skráð sig á Meniga.is eða í appinu okkar. Sama hvort þú skráir þig reglulega inn og ert ofurnotandi af Meniga eða skráðir þig einu sinni og hefur ekki flokkað eina einustu færslu, allir fá almennu endurgreiðslutilboðin okkar. Allir sem nýta sér þau fá svo endurgreitt inn á reikninginn sinn þann 18. næsta mánaðar þann pening er hægt að nota til þess að gera hvað sem er fyrir.

Þessum tilboðum er kannski hægt að líkja við sumarið á Spáni. Sólin bara dælir út úr sér sólargeislum yfir alla, konur og karla.

Vonandi líkar þér vel við almennu endurgreiðslutilboðin okkar og þú baðar þig upp úr hinni ímynduðu spánarsól. Þú getur jafnvel sparað dálitla upphæð til þess að leggja fyrir og nota upp í raunverulegt spánarsólarfrí. Ef þú nýtir þér almennu tilboðin, skráir þig inn á Meniga.is eða appið, tengir öll kortin þín ertu líklegri til að fá fleiri tilboð sem eru jafnvel sérsniðin að þér.

Sérsniðnu tilb0ðin eru meira svona eins og íslenska sumarið. Þar skín sólin bara stundum á þig en þegar hún skín þá er það einhvernveginn svo magnað og dásamlegt.

Kýrin hér að ofan myndi til dæmis aldrei fá sérsniðið endurgreiðslutilboð í skóbúð en hún gæti fengið sérsniðið endurgreiðslutilboð hjá verslun sem selur hey. Mynd Erlendur Þór Gunnarsson.

Þau sérsniðnu eru með hærri afsláttum en þau almennu en eru líka sérsniðina að þér. Það þýðir að þú færð meiri afslátt hjá fyrirtækjum sem við teljum að passi vel við þig út frá því hvar þú hefur verslað áður. Annað hvort vegna þess að þú elskar að versla á þessum stöðum eða af því að þú verslar hjá svipuðum fyrirtæjum. Þessi endurgreiðsla safnast svo saman og kemur í einni gommu inná reikninginn þinn og þú getur notað til þess að spara.

Fæstir myndu vilja sitja alla daga undir brennandi spánarsólinni og eins og við vitum er íslenska sumarið takmörkuð gæði. Við elskum því að blanda þessu saman og sendum nú sérsniðin og almenn endurgreiðslutilboð á þá sem nota Meniga, vonum að þú viljir baða þig uppúr tilboðunum með okkur og njótir þess að spara.

--

--