Stór dagur hjá Meniga

Það verður lítið unnið í höfuðstöðvum Meniga í dag. Afrakstur margra mánaða vinnu var kynntur í morgun og það er mögnuð blanda af svefndrukknum flissandi Menigans sem ráfa um á þrettándu hæð í Turninum í tilfinningarússi.

Í nokkra mánuði hefur allt fyrirtækið lagst á árarnar og í dag kynntum við nýtt app bæði fyrir iPhone og Android. Ekki nóg með það, við fórum líka í loftið með spánýja vöru sem heitir Kjördæmi og á eftir að gleðja fullt af fólki með betri tilboðum en hafa sést á Íslandi áður.

Ásgeir vill betra Meniga á Íslandi

Við frumsýndum líka fyrstu auglýsingu Meniga þar sem hún Þóra okkar ræðir heimilisfjármál við nokkra þjóðþekkta Íslendinga.

Við tókum upp nokkrar klippur síðustu daga sem sýna hvernig andrúmsloftið varð súrara þegar leið að útgáfu.

Við þökkum þeim sem mættu í kaffi í morgun og ykkur öllum sem hafa notað kerfið okkur hingað til. Við tökum líka fagnandi á móti þeim sem byrja að nota Meniga í dag. (Munið bara að skrá ykkur í netbankanum fyrst og svo skrá ykkur inn í appið).

Nokkur tíst


Nýtt stöff kynnt á þessum skjá rétt bráðum cc @Meniga_is pic.twitter.com/YJrBCMucC4
— Valur Thor (@valurthor) November 14, 2014
Meniga hjálpar notendum að spara. Leynist #kjördæmi hjá þér ? #meniga pic.twitter.com/UpdB0nOeCx — Eva Björk (@evabjr) November 14, 2014
Radiant Games is at @Meniga_is breakfast. Meniga is announcing (probably) the biggest app ever developed in Iceland. pic.twitter.com/cvapYLiFMP
— Radiant Games (@RadiantGames_is) November 14, 2014

Originally published at meniga.is on November 14, 2014.