Tíðarfar og ferðatíðni

Nú er gengið í garð ferðatímabil hjá Íslendingum. Við notum gjarna sumarfríið til þess að ferðast, bæði innanlands og utan. Ef við skoðum kauphegðun fólks í Menigahagkerfinu hjá fimm stærstu ferðaskrifstofunum undanfarin þrjú ár sést að flestar ferðir eru keyptar fyrstu þrjá mánuði ársins. Í apríl og maí dregur úr kaupum og bæði 2011 og 2012 er júlí sölulægsti mánuðurinn ef frá eru taldir nóvember og desember. En í fyrra skera júlí og ágúst sig verulega úr. Í júlí 2013 voru keyptar utanlandsferðir fyrir 20% hærri upphæð, að teknu tilliti til verðbólgu, en sama mánuð árið áður. Í ágúst í fyrra voru keyptar ferðir fyrir 18% meira en í ágúst 2012. Seinni hluti ársins er síðan í samræmi við það sem gekk og gerðist árin á undan.

Viðrar vel til brottfara

Það þarf engan geimvísindamann til að tengja saman veðurfarið í fyrrasumar og skort á sól við löngunina í að komast í sólarlandaferð. Á vef Veðurstofunnar segir um veðrið í júlí í fyrra: „Tíð var óhagstæð um landið sunnan- og vestanvert lengi fram eftir mánuðinum, með úrkomu og sólarleysi, en batnaði þá og varð síðasti þriðjungur mánaðarins hagstæður.“ Sjá hér. Og um ágúst 2013 segir á sama stað: „Tíð var lengst af óhagstæð um landið sunnan- og vestanvert með þrálátri úrkomu og þungbúnu veðri. Mun hagstæðara tíðarfar ríkti um landið norðan- og austanvert.“ Sjá hér. Þá er tíðarfar sumrin 2011 og 2012 hagstætt og hiti yfir eða nálægt meðallagi.

Utan vil ek

Það er ekkert óeðlilegt við það að langa til útlanda þegar sólin lætur sig algerlega vanta. Leiða má að því góðar líkur að hráslagalegt tíðarfarið í fyrrasumar hafi haft verulega örvandi áhrif á sölu utanlandsferða og því verður afar áhugavert að fylgjast með því hvort og þá hvernig tíðarfarið hafi á ferðir okkar Íslendinga í ár.

Ofangreindar upplýsingar eru fengnar úr Menigahagkerfinu og unnar í samstarfi við Stofnun um fjármálalæsi. Meniga hjálpar fólki að halda utan um fjármál heimilisins og eru notendur rúmlega 30.000 talsins. Aldrei er unnið með persónugreinanleg gögn í Meniga hagkerfinu. Nánari upplýsingar má finna á www.meniga.is og www.fe.is.


Originally published at meniga.is on July 15, 2014.