Viðskiptavinir Nova notuðu 60,6% af öllu gagnamagni í farsíma á Íslandi

Liv Bergþórsdóttir
novaisland
Published in
2 min readNov 14, 2017

Í nýrri tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar yfir íslenska fjarskiptamarkaðinn, fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2017, voru 457.567 símkort í notkun á Íslandi.

Nova er samkvæmt skýrslunni stærsta farsímafyrirtæki landsins með 34,9% markaðshlutdeild í fjölda viðskiptavina og erum við gríðarlega þakklát og stolt af þessum árangri.

Viðskiptavinir Nova notuðu farsímann sinn að meðaltali mun meira en viðskiptavinir annarra símafyrirtækja, en þó áberandi mest þegar kemur að netnotkun.

Viðskiptavinir Nova notuðu 60,6% alls gagnamagns í farsímum á Íslandi á fyrri hluta ársins 2017 og er netumferðin á 4G kerfi Nova margfalt meiri en hjá samkeppnisaðilum.

Ef markaðurinn er skoðaður út frá símkortum sem fara í annað en farsíma t.d. 4G punga, iPad og box þá er markaðshlutdeild Nova 26,6% í fjölda viðskiptavina en 67,6% í netnotkun.

Þessar tölur sýna yfirburði Nova í 4G farsíma- og netþjónustu hér á landi. Nova hefur verið leiðandi þegar kemur að innleiðingu nýrra kynslóða fjarskiptatækni. Fyrirtækið setti upp fyrsta 3G farsímakerfið hér á landi árið 2006, hóf 4G þjónustu árið 2013 fyrst fyrirtækja og þann 10. október 2017 setti félagið fyrstu 4,5G sendana í loftið.

4,5G er næsta kynslóð farsímakerfa og er Nova á meðal fyrstu símfyrirtækja í Evrópu til að hefja slíka þjónustu. 4,5G fjarskiptakerfi Nova mun þrefalda nethraða notenda að meðaltali frá 4G.

Hver ný kynslóð fjarskiptakerfa hefur haft í för með sér margföldun á hraða og þar með á notkunarmöguleikum farsíma, úrvali smáforrita og annarra samskiptamáta. Ný og öflugri fjarskiptakerfi ryðja brautina og gera nýjar framfarir mögulegar.

Liv Bergþórsdóttir forstjóri og Jóakim Reynisson framkvæmdastjóri tæknisviðs Nova

Ég vil nota tækifærið og þakka viðskiptavinum okkar fyrir frábærar viðtökur við þjónustu Nova.

Nálgast má skýrsluna á vef Póst- og fjarskiptastofnunar.

Liv Bergþórsdóttir, forstjóri.

--

--