Vilt þú fara til Kína?

Nova
novaisland
Published in
2 min readJun 12, 2018

Nova og Huawei bjóða tveimur nemendum, til Kína í starfskynningu hjá Huawei.

Verkefnið ber heitið ,,Telecom seeds for the future” og hefur það markmið að kynna nemum starfstækifæri í fjarskiptageiranum. Hlutverk þeirra sem fá tækifæri til að fara til Kína er einnig að miðla af reynslu sinni og þekkingu að ferð lokinni í samvinnu við Nova.

Námsferðin

Tveggja vikna starfskynning í Kína, frá 17. ágúst — 31. ágúst nk. þar sem tveir íslenskir háskólanemar slást í för með fleiri erlendum háskólanemum.

  • Tveggja vikna starfskynning hjá Huawei í Kína
  • Þátttakendur dvelja fyrri vikuna í Beijing og seinni í Shenzen
  • Viku tungumála- og menningarfræðsla um Mandarine
  • Huawei þjálfun í fjarskiptatækni
  • Starfsþjálfun í höfuðstöðvum Huawei í Shenzen

Námsferð í boði Huawei í samstarfi við Nova: flug, gisting og matur innifalið.

Hæfniskröfur

Nemendur sem eru á öðru ári eða lengra komnir í verkfræði eða tölvunarfræði geta sótt um og verða tveir umsækjendur valdir.

Til að sækja um þarf að skila inn ferilskrá með námsárangri ásamt kynningarbréfi (hámark ein blaðsíða) sem rökstuðning um af hverju þú ættir að verða fyrir valinu. Rökstuðningurinn þarf að sýna fram á áhuga á Kína, fjarskiptatækni og af hverju þú værir kjörin(n) fulltrúi til að taka þátt í verkefninu.

Dómnefnd skipuð Jóakim Reynissyni, framkvæmdastjóra tæknisviðs Nova og fleirum munu fara yfir innsendar umsóknir og velja tvo nemendur.

Umsóknarfrestur er til 20. júní og val á fulltrúum verður kynnt 27. júní. Sendu umsókn þína á namsferd2018@nova.is

--

--

Nova
novaisland

Velkomin á stærsta skemmtistað í heimi!