Ha? Er hægt að fá pening endurgreiddan í hverjum mánuði í gegnum Meniga?

Kristján Kristjánsson
Meniga Iceland
Published in
2 min readJun 3, 2015

Já, með Meniga getur þú fengið pening endurgreiddan í hverjum mánuði í gegnum nýja tilboðsvirkni í kerfinu sem við köllum Kjördæmi.

Þú skráir þig í Meniga og færð endurgreiðslutilboð sem tengjast þér og þínum venjum. Þannig færð þú bara Kjördæmi sem henta þér sérstaklega. Þú virkjar Kjördæmið, verslar og greiðir fullt verð við kassann án þess að sýna neinum að þú sért með Kjördæmi. 18. hvers mánaðar færð þú afsláttinn endurgreiddan á bankareikning að eigin vali.

Einfalt að skrá sig og kostar ekki neitt.

Allir geta skráð sig í Kjördæmi sem hafa bankareikning hjá Arion, Landsbankanum eða Íslandsbanka. Kostar ekkert fyrir notendur og gerir þeim kleift að fá hluta af sínum útgjöldum endurgreidd. Hér eru sex einföld skref til að byrja:

1. Skráðu þig í Meniga.
2. Tengdu alla reikninga og öll kort úr öllum þínum bönkum. Því meira sem þú tengir því meiri líkur eru á að þú fáir Kjördæmi.
3. Virkjaðu Kjördæmi sem birtast í Meniga (Ertu þegar notandi? Smelltu hér til að sjá hvort þú sért með Kjördæmi)
(Afslátturinn er nú búinn að hlaðast á öll kort sem þú ert með tengd við Meniga, frá öllum þínum viðskiptabönkum og þjónustuaðilum.)
4. Verslar fyrir fullt verð. Þú þarft ekki að sýna eða segja neinum frá því að þú sért með afslátt.
5. Veldu á hvaða bankareikning þú vilt fá endurgreitt og sjáðu endurgreiðsluna sem hefur safnast upp koma inn 18. hvers mánaðar.
6. Gerðu eitthvað skemmtilegt fyrir peninginn!

Ertu þegar skráður notandi? Smelltu hér til að sjá hvort þú sért komin/n með fyrstu Kjördæmin. Einhverjar spurningar? Kíktu endilega á algengar spurningar sem snúa að Meniga og Kjördæmum. Ef við við getum aðstoðað þig með eitthvað fögnum við öllum ábendingum og spurningum á netfangið hjalp@meniga.is.

--

--