Fyrirlestur um bálkakeðjur og rafmyntir á íslensku - Háskólinn í Reykjavík, 27 nóvember
Á morgun, þriðjudaginn 27 nóvember kl 12:00, mun ég halda fyrirlestur um bálkakeðjur og rafmyntir í Háskólanum í Reykjavík.
Fyrirlesturinn er með yfirskriftina: „Er bálkakeðja framtíðin?“.
Farið verður um víðan völl í heimi rafmynta og bálkakeðja, en við reynum að taka góðan tíma í spurningar.
Nánar um fyrirlesturinn
Uppúr 2008 má segja að það hafi orðið sprenging í nýsköpun í fjártækni og tengdum greinum eftir að Bitcoin leit dagsins ljós. Kristján Ingi Mikaelsson framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs Íslands kemur í heimsókn til okkar í HR.
Í fyrirlestrinum verður ekki einungis fjallað um söguna og framtíðina, einnig kafað ofan nokkrar grundvallarspurningar sem snú að tækninni sjálfri og þeirri umbyltingu sem gæti valdið.
- Hvað eru snjallsamningar og forritanlegir peningar?
- Hvaða áhrif munu forritanlegir peningar hafa á vélræn viðskipti (e. machine to machine economy)?
- Hverju mun það breyta að hafa þjóðargjaldmiðla á bálkakeðjum
- Eru milliliðir eða traustir aðilar að verða óþarfi?