Hlaðvarp Rafmyntaráðs verður til 📻

@kristjanmik
Rafmyntaráð Íslands
1 min readJun 4, 2019

Undanfarna mánuði höfum við unnið hörðum höndum að því að taka upp hlaðvarpsseríu um fjármálakerfið og tækni en inntakið er hvernig þessir tveir heimar eru að mætast. Við höfum fengið til okkar góða gesti og erum nú tilbúin að senda þættina frá okkur.

Þættirnir koma út annan hvern þriðjudag og höfum við leitast við að hafa viðmælendur þáttarins fjölbreytta og úr ólíkum áttum.

Hægt er að nálgast hlaðvarpið á Spotify, iTunes, Google Music og heimasíðu hlaðvarpsins.

Ef að þú hefur áhugavert erindi eða veist um einhvern einstakling sem væri tilvalinn í þáttinn er hægt að hafa samband á ibf@ibf.is.

--

--

@kristjanmik
Rafmyntaráð Íslands

Managing Director of the Icelandic Blockchain Foundation. Into #mining. Host of the IBF Podcast #bitcoin #crypto #blockchain