Lykil árangursmælikvarðar (e. KPI) fyrir samfélagsmiðla

Guðmundur Tómas Axelsson
WebMo Design
Published in
3 min readApr 11, 2018

Algengt er að fyrirtæki skilgreini sína lykil árangursmælikvarða fyrir sína starfsemi. Mælikvörðunum er þá vanalega skipt eftir mismunandi starfsemi fyrirtækisins svo sem fjármálum, framleiðslu, markaðsmálum, þjónustu o.s.frv. Fjármálalegir mælikvarðar eru líklega þeir mælikvarðar sem er auðveldast að skilgreina og mæla. Erfiðara getur verið að ná utan um hina mælikvarðana.

Í stuttu máli þá segja lykil árangurmælikvarðar til um það hvernig gengur að ná viðskiptalegum markmiðum.

Samfélagsmiðlar eru sífellt að verða stærri þáttur í markaðssetningu og þjónustu fyrirtækja. Tölfræðin talar sínu máli:

  • Árið 2017 póstuðu 80 milljarðar notenda færslum á samfélagsmiðlum
  • 95% fólks á aldrinum 18 til 34 ára kýs að fylgja vörumerkjum á samfélagsmiðlum

Líklegt er að fyrirtæki séu ekki komin eins langt í að skilgreina og ákveða lykil árangursmælikvarða tengt samfélagsmiðlum og öðrum þáttum starfseminnar.
Hvaða árangursmælikvarðar skipta hins vegar máli þegar kemur að samfélagsmiðlum?

Hér gefur að líta helstu lykil árangursmælikvarða þegar kemur að samfélagsmiðlum en það fer að sjálfsögðu eftir markmiðum hverju sinni hvaða mælikvarðar skipta mestu máli.

Þátttaka (e. Engagement)

Þetta er líklega sá mælikvarði sem skiptir mestu máli á samfélagsmiðlum. Hann segir til um hvernig og hversu mikið notendur taka þátt í aðgerðum fyrirtækisins á samfélagsmiðlum t.d. hvernig þeir bregðast við Facebook og Instagram færslum. Mælikvarðinn samanstendur af:

  • Smellir (e. Clicks). Segir til um hversu margir smella á link sem deilt er og fer árangurinn eftir því hversu góður titill færslunnar er og grafíkin sem notuð er. Notendur smella á færslur sem vekja áhuga þeirra.
  • Líkar við (e. Likes). Þegar notendum líkar við færslu þá er líklegra að færslan fái meiri athygli. Notendur eru almennt líklegri til að líka við færslur sem eru vinsælar. Algoritmar flestra samfélagsmiðla gera færslum sem mörgum líkar við hærra undir höfði en öðrum sem hjálpar til við að ná til fleiri notenda.
  • Deilingar (e. Shares). Það er í raun mun mikilvægara ef einhver deilir færslunni þinni heldur en líki við hana. Með því að deila efni er viðkomandi í raun að mæla persónulega með því og er góð vísbending um gæði efnisins.
  • Athugasemdir (e. Comments). Áhugavert efni kallar á samtal. Það á jafnvel að fagna gagnrýni í athugasemdum því það er tækifæri til að gera betur.
  • Fjöldi þeirra sem minnast á vörumerkið (e. Brand Mentions). Þegar notendur tagga eða minnast á vörumerkið á samfélagsmiðlum þá er líklegt að vörumerkið sé að vekja athygli á einn eða annan hátt.
  • Virkir fylgjendur (e. Active Followers). Fjöldi virkra notenda er vísbending um hvernig þú ert að standa þig á samfélagsmiðlum og/eða hversu mikil gæði efnisins er. Hins vegar er þetta mælikvarði sem getur verið erfitt að mæla á sumum samfélagsmiðlum.

Dekkun (e. Reach)

Dekkun eða Reach er gamall mælikvarði sem hefur verið notaður lengi í markaðssetningu. Mælikvarðinn segir til um hversu langt skilaboðin ferðast og hversu mörg augu sjá þau. Þó svo að mælikvarðinn sé að mörgu leiti enn mikilvægur þá getur hann líka verið villandi á samfélagsmiðlum. Hann sýnir einungis fjölda þeirra sem mögulega sjá skilaboðin. Þátttaka (e. Engagement) sýnir hins vegar hversu margir raunverulega bregðast við. Mælikvarðinn samanstendur af eftirfarandi lykil mælikvörðum:

  • Fylgjendur (e. Followers). Fjöldi fylgjenda vörumerkis á samfélagsmiðlum gefur til kynna þann fjölda sem gæti séð skilaboðin þín en tryggir það ekki. Með því að gerast fylgjandi vörumerkis ertu í raun að lýsa yfir áhuga á að sjá efni frá því.
  • Birtingar (e. Impressions). Fjöldi birtinga segir til um hversu oft skilaboð koma fram í fréttaveitu (e. Newsfeed) eða tímalínu (e. Timeline) notenda, annaðhvort vegna þess að viðkomandi eru fylgjendur vörumerkisins eða að vinir þeirra hafi líkað við efnið eða deilt því. Þetta er í raun einingis sá mögulegi fjöldi sem hefði getað séð skilboðin. Þeim mun hærri sem talan er þeim mun betra.
  • Umferð (e. Traffic Data). Þessi mælikvarði er mjög mikilvægur því hann segir til um hversu mikil umferð er að koma inn á vefsíðu fyrirtækisins frá samfélagsmiðlum.

Greinin birtist fyrst 11.04.2018 í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál og á visir.is.

--

--