Viðburðadagatal fyrir samfélagsmiðla 2018
Viðburðir af ýmsu tagi eru oft á tíðum stór partur af markaðsstarfi fyrirtækja. Fyrirtæki tengja sig viðburðum til að lífga upp á ytra markaðsstarf og er það þá oftast hluti af ímyndaruppbyggingu þeirra. Viðburði má einnig nota í innra markaðsstarfi og getur það verið frábær leið til að efla fyrirtækjamenninguna.
Til að auðvelda fyrirtækjum að vita hvað er í gangi hverju sinni þá útbjuggum við hjá WebMo Design okkar eigið viðburðadagatal með sérstaka áherslu á samfélagsmiðla. Að sjálfsögðu er þetta ekki tæmandi dagatal en inniheldur fullt af skemmtilegum viðburðum til þess að gera markaðssetningu á samfélagsmiðlum skemmtilegri…og í raun markaðssetningu almennt!
Þú nálgast dagatalið hér:
Viðburðadagatal 2018