Video Creation Kit frá Facebook — Breyttu myndum í myndskeið.
Fyrr í mánuðinum kynnti Facebook til leiks viðbót sem gerir okkur kleift að breyta venjulegum myndum í myndskeið með örfáum smellum, ásamt nokkrum öðrum skemmtilegum minniháttar viðbótum. Hér er okkar samantekt!
Video Creation Kit
Facebook hefur tekið uppsetningu myndbanda á næsta stig með uppfærslu á viðmótinu bæði í Ads Manager og venjulegri síðuumsjón.
Þetta nýja tól bíður uppá sniðmát (e. templates) í stærðum sem henta bæði í Feed og Stories, en sniðmátin skiptast í eftirfarandi flokka:
Promote a product (6 sekúndur): Áhersla á eina vöru, sölumiðað
Sell multiple products (6 sekúndur): Áhersla á margar vörur, sölumiðað
Show product benefits (15 sekúndur): Áhersla á notagildi vöru, ítarleg kynning á henni
Drive product discovery (15 sekúndur): Áhersla á vörumerkið og sérstöðu varanna
Eftir að maður velur undirflokk sem passar við áherslurnar sem maður óskar eftir, setur Facebook myndirnar saman fyrir mann og smellir þeim upp í þokkalega útlítandi myndband — Einfalt, fljótlegt og þægilegt!
Myndbönd taka sífellt stærri hluta kökunnar þegar kemur að efni (e. content) sem grípur athygli notenda á samfélagsmiðlunum og því er þessi viðbót frá Facebook kærkomin! Möguleikinn á Story sniðmátum gera viðbótina ennþá skemmtilegri!